SPARTAKUS
Ítarlegar greiningar á gögnum hlaðvarpa
Stöðlum & tryggjum áreiðanleika hlustunartala hlaðvarpa. Yfirlit byggð á skráðum gögnum, staðfestum mælingum & gagnsæjum útreikningum. Betri gögn fyrir auglýsendur & hlaðvörp.
Allt að..
%
Meiri hlustun en hlaðvörp halda
%
Lengri auglýsingar eftir að byrja nota Spartakus
%
Líkur á að auglýsingar gleymist
SPARTAKUS
Stöðlum og tryggjum áreiðanleika hlustunartala hlaðvarpa
Hlaðvörp nota mismunandi kerfi eins og Buzzsprout og Soundcloud til að miðla þáttum yfir á dreifiveitur á borð við Spotify, Apple Podcasts og Podbean. Hvert kerfi áætlar hlustun út frá ólíkum mælikvörðum – eins og spilunum, niðurhali eða öðrum reiknuðum gögnum – sem túlkuð eru á mismunandi hátt.
Afleiðingin er óreiða og ógagnsæi í hlustunartölum, sérstaklega á íslenskum markaði þar sem hver og einn er að vinna með mismunandi gögn. Spartakus leysir þetta með því að staðla og sameina gögn á milli allra aðila.
Fyrir fyrirtæki
Ef þú auglýsir í hlaðvörpum, þarftu Spartakus
Hingað til hefur verið erfitt að sannreyna hlustunartölur og vera með skýra yfirsýn. Með því að nýta sér Spartakus er verið að tryggja stöðluð gögn og vottun þriðja aðila.
Með Spartakus hámarkar þú virði hverrar krónu sem fer í hlaðvarpsauglýsingar. Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan og sjáðu hvernig Spartakus getur hjálpað þér.
Fyrir hlaðvörp
Þú ert með fleiri hlustendur
Dreifiveitur eru ekki með staðlaða tölfræði sem nær yfir allar veitur, eins og má sjá þegar rýnt er í gögnin. Við höfum séð allt frá 10-45% misræmi og með okkar gögnum náum við að leiðrétta.
Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan ef þú vilt lesa meira hvernig Spartakus getur hjálpað þínu hlaðvarpi.
Þjónustan
Mánaðarlegar skýrslur fyrir hlaðvörp. Settar upp á snyrtilegan og auðlesinn hátt. Afhendingarmáti er tilbúið PDF skjal sem senda má beint á mögulega kostendur. Þar að auki fá hlaðvörpin ársskýrslu í lok árs með greiningu á árinu.
Fyrir hlaðvörp
Greiningarpakki
Fyrirtæki fá mánaðarlega skýrslu yfir auglýsingabirtingar, frammistöðu hlaðvarpsins og hagnýta samantekt sem auðveldar mat og eftirfylgni. Ásamt því fá fyrirtækin hljóðbrot, textaðar auglýsingar & sjálfvirka eftirfylgni á hlaðvörpin fyrir hönd fyrirtækisins.
Fyrir fyrirtæki
Fyrirtækjaþjónusta
Fyrirtæki fá greiningar á kostuðum hlaðvörpum & frammistöðu auglýsinga. Þar innifalið er persónuleg ráðgjöf um hvað megi betur fara og hvernig á að fá sem mest út úr hverri kostun. Þar að auki er hægt að óska eftir að Spartakus sjái um samskipti, eftirfylgni og umsjón kostana í hlaðvörpum.
Fyrir Fyrirtæki
Ráðgjöf & þjónusta
Hvað þarf Spartakus aðgengi að, svo hlaðvarpið mitt geti fengið greiningar?
Spartakus þarf aðeins les-aðgang (e. reader) á Spotify og aðgengi að dreifiveitu (Buzzsprout, Anchor, etc.). Uppsetningin tekur örfáar mínútur.
Getur Spartakus eytt þáttum af rásinni minni ef ég gef þeim aðgang?
Nei, við þurfum aðeins les-aðgang. Sumar dreifiveitur bjóða ekki upp á þann möguleika. Í þeim tilfellum þarf að veita Editor aðgang sem hefur þá eiginleika en við skrifum undir samning þar sem skýrt kemur fram að við opnum aðeins tölfræði síðuna, einu sinni í mánuði.
Hvað græða hlaðvörp á því að deila gögnunum sínum?
Hlaðvörp hafa óljósa hugmynd um eigin hlustun sem er metin á ólíkan hátt samkvæmt þeirri dreifiveitu sem þau styðjast við. Með því að staðla nálgunina geta þau miðlað gögnum til samstarfsaðila með betri vissu og það sem meira máli skiptir;
Hlustunin er í flestum tilfellum meiri en þau gera ráð fyrir.
Þar að auki þá eru skýrslurnar flottar og faglega uppsettar, tilbúnar til þess að senda á kostendur.
Hvað græða kostendur hlaðvarpa á að nota Spartakus?
Hámarka virði hverrar krónu sem þeir eyða í hlaðvarpsauglýsingar. Geta samið við hlaðvörp út frá skýrum forsendum í upphafi. T.d. tilætlaðs sekúndufjölda per þátt sem varið er í að auglýsa vörumerkið þeirra. Þeir sleppa einnig við að veita hlaðvörpum aðhald sem getur verið íþyngjandi – Spartakus gerir það með sjálfvirkum skeytasendingum.
Betri yfirsýn, hingað til hefur verið erfitt að sannreyna hlustunartölur. Með því að nýta sér Spartakus er verið að tryggja vottun þriðja aðila á gögnunum.
Hver fær að sjá gögnin sem Spartakus hefur aðgang að?
Miðlunarsamningur er gerður í upphafi samstarfs. Einungis hlaðvarpið fær að sjá skýrslurnar og kostendur þáttanna, með leyfi þáttarstjórnenda.
Þar að auki kveður miðlunarsamningurinn skýrt á um miðlunarheimildir í hverju tilfelli fyrir sig og brot á honum varðar íslensk lög (samkvæmt 43/2000 um lagaskil, og miðast réttaráhrif brotsins við meginreglur samningaréttarins og önnur almenn lög, en aðgerðir eru þær að krefjast efndir, bóta eða riftunar, allt eftir eðli brotsins, samkvæmt Íslenskum lögum.).
Hvernig tryggir Spartakus að gögnin séu rétt og áreiðanleg?
Spartakus ábyrgist ekki að gögnin séu 100% nákvæm. Spartakus tryggir hins vegar að nálgunin sé eins í öllum tilfellum og því samanburðarhæf milli hlaðvarpa. Þannig eru gögnin einnig vottuð af óháðum þriðja aðila.
Viltu heyra meira? Hafðu samband.
spartakus@spartakus.is